Aðaláherslur okkar eru á góðan, hollan mat, framleiddan úr gæða hráefni, fljót afgreiddan á góðu verði. Súpur, heimabakað brauð, salatbar og réttur dagsins framreiddur á fjölbreyttan máta. Sjálfsafgreiðsla er á staðnum en menn geta einnig tekið með sér matarpakka. Einnig er hægt að kaupa drykki, heita og kalda, nýmalaða kaffidrykki eins og cappuccino, swiss mocca, latte, expresso svo eitthvað sé nefnt. Kökur eru í boði alla daga bæði sætar kökur og hollustukökur.
Skoða matseðla:
